Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hertar reglur á Heilbrigðisstofnun - fólk beðið að koma ekki að óþörfu
Miðvikudagur 29. júlí 2020 kl. 19:43

Hertar reglur á Heilbrigðisstofnun - fólk beðið að koma ekki að óþörfu

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur breytt reglum varðandi heimsóknir á D-deild og beinir þeim eindregnu tilmælum til fólks sem er nýkomið til landsins að heimsækja ekki veika aðstandendur þar eða á hjúkrunarheimilið Víðihlíð í Grindavík fyrr en 14 dögum eftir heimkomu erlendis frá. 

Þá er fólk sem er í heimasóttkví eða með einkenni sem geta bent til COVID sýkingar beðið um að leita ekki beint á stofnunina heldur hringja á undan sér í síma 422-0500 og fá ráðleggingar eða bóka COVID ráðgjöf á www.heilsuvera.is.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Takmörkun er á fjölda aðstandenda með hverjum skjólstæðingi. Ef fólk getur komið eitt þá er það best annars er hámarkið einn aðstandandi. Fólk er beðið að koma ekki að óþörfu inn á stofnunina.

Á Facebook síðu HSS kemur fram:

- ATH breyttar reglur varðandi heimsóknir á D-deild HSS -

Heimsóknir á deildina verða leyfðar kl 18-20 með ákveðnum skilyrðum:

  • Einn gestur per sjúkling á dag (og eftir atvikum einn fylgdarmaður)
  • Hver heimsókn að hámarki í eina klst.
  • Þeir sem ætla að koma í heimsókn þurfa að hringja milli kl 13 og 16 og bóka heimsóknartíma. S. 422-0636
  • Starfsfólki er heimilt að vísa fólki frá ef fleiri en einn (ásamt fylgdarmanni þar sem það á við) gestur mætir í heimsókn eða ef þeir eiga ekki bókaðan heimsóknartíma.

ATHUGIÐ að sem fyrr mega gestir ekki koma í heimsókn ef þeir:

  • eru í sóttkví
  • eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku)
  • hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
  • eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.)

ATHUGIÐ:

Ef smit vegna COVID-19 aukast eða smit vegna annarra smitsjúkdóma, gæti reglur varðandi heimsóknir verið hertar enn frekar.