Bygg
Bygg

Fréttir

Þriðjudagur 6. mars 2001 kl. 10:19

Hert eftirlit með starfsmönnum fyrirtækja í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Tollgæslan og lögreglan á Keflavíkurflugvelli handtóku nýlega tvo flugvirkja hjá Flugleiðum, vegna smygls á um nokkru magni af hassi til landsins. Þeim hefur báðum verið sagt upp störfum og eftirlit með starfsmönnum fyrirtækja á Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur einnig verið hert.

Þrír starfsmenn teknir fyrir smygl
Grunur mun hafa leikið á því um nokkra hríð að fíkniefnum væri smyglað til landsins með fraktflugvélum en þetta er þriðja tilvikið á tiltölulega skömmum tíma þar sem starfsmenn
flutningafyrirtækis eiga þátt í flutningi fíkniefna til landsins. Áður hefur slíkt gerst hjá bæði Samskipum hf. og Eimskip hf.
Jóhann R. Benediktsson sýslumaður í Keflavík segir að eftirlit með starfsmönnum fyrirtækja í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafi verið aukið upp á síðkastið og verði enn hert á næstunni. Undanfarna mánuði hafi þrír starfsmenn fyrirtækja í flugstöðinni verið staðnir að því að smygla vörum út af flugvallarsvæðinu. Þeim hefur verið vísað frá störfum.
Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli segir að eftirlit á flughlöðum og í flugvallarhliði hafi verið hert að undanförnu. Nú sé verið að vinna að uppsetningu á s.k. innri girðingu sem mun girða af flughlöð við flugstöðina. Þá verður eftirlitsmyndavélum bætt við utanhúss. Hann býst við því að framkvæmdir muni hefjast í vor.

Myndavél í viðhaldsskýli fyrir fimm árum
Samkvæmt upplýsingum frá sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli var eftirlitsmyndavél komið fyrir í viðhaldsskýli Flugleiða á Keflavíkurflugvelli fyrir um fimm árum. Myndavélin mun hafa verið sett upp að beiðni tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli en samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu var hún fjarlægð skömmu síðar eftir kvartanir frá starfsmönnum í skýlinu. Um mánuði síðar fann ræstingakona um eitt kíló af hassi í ruslafötu í einni af flugvélum Flugleiða og tilkynnti það til tollgæslu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn