Herstjórnarmiðstöð sett upp á Keflavíkurflugvelli
Sameiginlega viðbragðssveitin (Joint Expeditionary Force, JEF) sem Bretar leiða ásamt Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og Hollandi hefur í æfingarskyni sett upp færanlega herstjórnarmiðstöð á öryggissvæðinu í Keflavík.
Þetta er í fyrsta skipti sem viðbragðssveitin heldur æfingu á Íslandi en Ísland hóf þátttöku í samstarfinu í apríl 2021. Markmiðið með æfingunni er að gefa þátttökuríkjum tækifæri til að kynnast aðstæðum á Íslandi, setja upp færanlega herstjórnarmiðstöð, þróa viðbragðsáætlanir og æfa sviðsmyndir sem tengjast öryggisáskorunum á sviði fjölþáttaógna. Um 250 manns frá stjórnstöð JEF, þátttökuríkjum og öðrum vinaþjóðum taka þátt í æfingunni. Utanríkisráðuneytið og varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar halda utan um skipulag verkefnisins af hálfu Íslands.