Hernum blæðir út hægt og rólega

Tæplega 800 Íslendingar vinna í herstöðinni og Kristjáni virðist sem lengi sé hægt að fækka fólki.
„Menn draga úr þjónustu, loka byggingum og hætta einu og öðru til að mæta þessu.“
Um 1.500 Íslendingar unnu á Vellinum þegar mest var og um svipað leyti voru þar hátt í 600 starfsmenn Íslenskra aðalverktaka. Nú eru þar innan við 100 á vegum verktakafyrirtækisins.
Kristján rifjar upp að hér áður fyrr hafi samdrætti verið mætt með því að færa verkefni frá hernum sjálfum til verktaka. Störfum hafi ekki fækkað en starfsfólk flust milli vinnuveitenda.
„Nú er þetta allt á sömu bókina lært, það er stöðugur samdráttur og minnkun á þjónustu og þessu er að blæða út hægt og rólega.“
Kristján segir mikilvægt að stjórnvöld mæti ástandinu og gott væri ef þau byrjuðu á að viðurkenna vandamálið. „Það verður að fara að nálgast málið út frá atvinnupólitískum sjónarmiðum en ekki bara varnarpólitískum,“ segir hann.
Fjarað hefur undan sjávarútvegi á svæðinu, mikill kvóti hefur verið keyptur burt úr byggðalögunum og skilið eftir sig fjölda atvinnulausra.
Kristján segir nauðsynlegt að eitthvað stórt gerist í atvinnumálunum og nefnir sem dæmi að stjórnvöldum hafi verið boðið að nýta húsnæði Íslenskra aðalverktaka á Vellinum undir fangelsi í
stað þess að reisa dýra byggingu í landi Reykjavíkur. „Þarna myndu falla til tugir starfa,“ segir hann.
„Svo gengur þetta ekkert þarna úti í Helguvík, þar er allt á hraða snigilsins. Keilisnesið stendur svo alltaf ónotað og býður eftir atvinnutækifærum. Menn horfa bara norður í land og austur á firði í stað þess að líta út um gluggann á leið frá flugstöðinni,“ segir Kristján Gunnarsson og hvetur til samvinnu allra sem að Hernum blæðir út hægt og rólega, í Fréttablaðinu í dag.