Fréttir

Héraðsdómur hefur fallist á beiðni BÍ um flýtimeðferð í Grindavíkurmáli
Mánudagur 12. febrúar 2024 kl. 19:30

Héraðsdómur hefur fallist á beiðni BÍ um flýtimeðferð í Grindavíkurmáli

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á beiðni Blaðamannafélags Íslands um flýtimeðferð vegna máls sem félagið hefur höfðað á hendur íslenska ríkinu til viðurkenningar á rétti blaðamanna til þess að stunda störf sín í Grindavík. Réttarstefna í málinu var gefin út í dag og birt fyrir íslenska ríkinu. Málið verður þingfest í Héraðsdóm Reykjavíkur kl. 14 á miðvikudag.

Flóki Ásgeirsson, lögmaður BÍ segir: "Búast má við því að ríkið óski eftir 2-4 vikna fresti til að skila greinargerð af sinni hálfu um málið. Flýtimeðferð málsins er forsenda þess að unnt sé að tryggja þau réttindi sem málshöfðunin varðar og afar þýðingarmikið fyrir málið í heild að fallist hafi verið á hana. Ljóst er að um fordæmalausar takmarkanir á fjölmiðlafrelsi er að ræða og málið fordæmisgefandi um hlutverk fjölmiðla við umfjöllun um náttúruhamfarir og takmarkanir á fjölmiðlafrelsi við slíkar aðstæður."

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Félagið krefst þess að viðurkennt verði með dómi að blaðamönnum sé það heimilt án sérstaks leyfis lögreglustjórans á Suðurnesjum, fari þeir að þeim almennu fyrirmælum sem í gildi eru á hverjum tíma um umferð um bæinn og lokun einstakra svæða og öðrum lögmætum fyrirmælum lögreglu. 

Sjá nánar í frétt á press.is