Hér eru Víkurfréttir þessa vikuna
— fimmtudagsútgáfunni dreift á miðvikudögum og fimmtudögum
Víkurfréttir eru fimmtudagsblað. Vegna breytinga á dreifingu hjá Póstinum hefur blaðið verið að berast hluta lesenda á föstudegi. Til að bregðast við þessu höfum við ákveðið að setja blaðið í prentun fyrr. Nú er blaðið prentað í lok dags á þriðjudegi og fer í dreifingu um Suðurnes á miðvikudögum og fimmtudögum. Um helmingur heimila á Suðurnesjum hefur nú fengið Víkurfréttir, sem koma út á morgun, inn um lúguna í dag. Víkurfréttir eiga svo að hafa borist inn á öll heimili á Suðurnesjum fyrir lok dags á morgun.
Fyrir ykkur sem nennið ekki að bíða eftir blaði morgundagsins, þá er það hér að neðan.