Fréttir

  • Hendur HS Orku bundnar vegna ágreinings
  • Hendur HS Orku bundnar vegna ágreinings
Mánudagur 6. júlí 2015 kl. 14:15

Hendur HS Orku bundnar vegna ágreinings

Málið í farvegi gerðardóms síðan 2010.

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, segir hendur HS fyrirtækisins fremur bundnar þegar kemur að nýtingu virkjanakosta og sölu raforku vegna ágreinings við Norðurál um orkusölusamning vegna álvers í Helguvík. Þetta kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins og Vísis í dag. Málið hefur verið í farvegi gerðardóms í tvígang síðan árið 2010 og niðurstöðu er að vænta sumarið 2016. Ekki er ljóst hvenær af framkvæmdum Norðuráls í Helguvík verður. 
 
Í umfjölluninni segir Ásgeir að fyrirtækið vilji vera þátttakandi í orkufrekum verkefnum, en það geti lítið gert í því meðan beðið er niðurstöðu um gildi Helguvíkursamningsins. Þeir vilji selja orku eins og unnt sé, Norðuráli eða öðrum, en staðan sé sú að HS Orka gerði samning við Norðurál Helguvík um umtalsvert mikla orku og uppi sé ágreiningur um þýðingu hans í dag, nú þegar álverið er hvergi nærri byggt og ekki unnt að afhenda orku þangað.
 
Orkusölusamningurinn snýst um 150 MW af orku. HS Orka vill losna undan samningnum til að nýta orkuna í annað. Ljóst er að á meðan Norðurál og HS Orka deila um samninginn verður ekki af því og nýting orkunnar er því bundin því að Norðurál geti nýtt hana í Helguvík.
 
Sjá nánar í fyrrgreindri umfjöllun.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024