Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Föstudagur 4. febrúar 2000 kl. 12:40

Helmingurinn á erlenda markaði

Beitir H. Ólafsson í Vogum framleiðir línubeitningavél, spil og beituskurðarhnífa:Hafsteinn Ólafsson og eiginkona hans, Þóra Bragadóttir, stofnuðu fyrirtækið Beiti árið 1988. Reksturinn hefur gengið glimrandi vel frá upphafi og nú er svo komið að fyrirtækið annar ekki eftirspurn. Nú stendur til að ráða bót á því en í sumar er áætlað að fyrirtækið flytji í nýtt og mun stærra húsnæði. Einnig stendur til að fjölga föstum starfsmönnum en nú eru þau með einn fastan starfsmann, Þórð Sæmundsson, flugvirkja og fiskeldisfræðing. Rúmlega helmingur framleiðslu Beitis fer á erlenda markaði, aðallega til Færeyja en nýlega opnaðist stór markaður á Nýfundnalandi sem þau hjónin binda miklar vonir við. Aðal framleiðsla fyrirtækisins er beitningavél, línuspil og beituskurðahnífar. Smíða úr rústfríu stáli Hafsteinn vann áður sem vélstjóri á sjó og þegar hann fór í land þá ákvað hann að fara útí sjálfstæðan rekstur. Fyrstu 2-3 árin var Beitir aðeins aukabúgrein með annarri vinnu en þegar hlutirnir fóru að ganga upp þá sneru Þóra og Hafsteinn sér alveg að rekstri fyrirtækisins. „Við smíðum eingöngu úr rústfríu stáli því við teljum vera mesta framtíð í því. Í upphafi vorum við mikið í sérsmíði fyrir bæði matvæla- og fiskvinnslufyrirtæki, m.a. Vífilfell og Granda. Síðan fórum við að þróa beitningavél, línuspil og beituskurðahnífa og það hefur verið föst framleiðsla hjá okkur í um tíu ár“, segir Hafsteinn. Flytja í stærra húsnæði Beitir hefur verið með starfsemi sína í bílskúr við Ægisgötu í Vogum frá upphafi en húsnæðið er fyrir löngu orðið allt of lítið og hamlar framleiðslugetunni verulega. „Hérna áður fyrr smíðuðum við mikið á staðnum, þ.e. í bátunum og fyrirtækjunum. Við höfum líka verið með verktaka í vinnu hjá okkur en þegar við höfum verið með stór verkefni þá höfum við þurft að leigja húsnæði úti í bæ. Reyndar hafa þeir í Valdimari hf. í Vogum verið okkur mikið innan handar. Þar höfum við fengið að vera með aðstöðu þegar við höfum þurft á því að halda“, segir Hafsteinn en á eldhúsborðinu liggja teikningar sem hann segir vera af nýju stálgrindarskemmunni sem rísa mun á miðju sumri á nýju hafnarsvæði í Vogum. „Þetta er 450 fermetra stálgrindarhús og þegar það er tilbúið munum við bæta við nokkrum starfsmönnum. Þá getum við jafnframt aukið framleiðsluna um a.m.k. helming“, segir Hafsteinn og ekki er laust við að tilhlökkunar gæti í rödd hans. Útflutningur til Færeyja, Noregs og Grænlands Hafsteinn og Þóra hafa verið dugleg við að kynna framleiðslu Beitis á sjávarútvegssýningum undanfarin ár og sú kynning hefur svo sannarlega borið tilætlaðan árangur. „Markaðurinn í Færeyjum opnaðist eftir að við tókum þátt í Tor-Rek sýningu sem haldin var í Færeyjum 1998. Síðan þá hefur verið stöðugur útflutningur þangað. Eins og staðan er í dag erum við í basli með að skila af okkur pöntunum“, segir Hafsteinn og bætir við að áhugi Norðmanna hafi kviknað eftir sjávarútvegssýninguna í Reykjavík 1999 og þegar hafa nokkrar vélar verið sendar þangað. Spennandi tækifæri í Kanada Umboðsaðili Beitis í Kanada heitir Icedan, en það er mjög stór fyrirtæki í sölu á væðafærum og tækjum til fiskiskipa að sögn Hafsteins. „Þorskveiðar hafa ekki verið leyfðar við Nýfundnalandi í tólf ár en línuveiðar hefjast með vorinu. Útgerðafyrirtæki þar eru þegar búin að panta þrjú sett og ætla að sjá hvernig þau reynast. Ég og Ástþór skipstjóri, förum út til þeirra til að setja upp og kenna þeim á tækin en Ástþór er búin að nota þau í 6 ár á skipinu sínu. Nýfundnalendingarnir voru mjög hrifnir þegar þeir sáu þetta hjá okkur á sjávarútvegssýningunni Marin ´99 sem haldin var í St. John´s á Nýfundnalandi, en það kemur í ljós hvað gerist þegar þeir eru búnir að reyna tækin“, segir Hafsteinn og viðukennir að hann hafi ákveðnar væntingar í sambandi við Kanadamarkað í framtíðinni. Persónuleg þjónusta Þóra segir að grunnurinn að velgengni þeirra á þessum markaði byggist fyrst og fremst á persónulegri þjónustu, vönduðum vinnubrögðum og tiltölulega ódýrri framleiðslu miðað við sambærileg tæki en þau hafa einnig aflað sér góðra sambanda á sjávarútvegssýningum á undanförnum árum. „Við erum búin að vera að þróa tækin s.l. níu ár og áður en við fórum að flytja þau á erlenda markaði var komin sex ára reynsla á þau hér heima“, segir Hafsteinn og bætir við að það hafi einnig hjálpað að hann sé sjálfur fyrrum sjómaður og hafi því góðan skilning á því sem sjómenn þurfa að fást við. Stór verkefni á dagskrá Fyrirtæki Beitir hefur þó ekki sagt skilið við íslenskan markað þrátt fyrir vaxandi eftirspurn erlendis. Áður sá fyrirtækið aðallega um að smíða í frystitogara en undanfarið hefur mest verið að gera í krókabátum og minni bátum en Hafsteinn tekur fram að búnaðurinn sé sérstaklega hannaður fyrir þá. „Við höfum þó verið að smíða í stærri skip“, segir Halldór. „Nýverið smíðuðum við t.d. vinnslulínu í Vesturborgina GK-195 og vinnslulínu um borð í Þuríði Halldórsdóttur. Við vorum að gera tilboð í að smíða fleiri vinnslulínur í stærri skip“, segir Hafsteinn.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024