HSS
HSS

Fréttir

Helmingsafsláttur af hvalaskoðunarferðum
Miðvikudagur 20. apríl 2005 kl. 18:23

Helmingsafsláttur af hvalaskoðunarferðum

Á morgun, sumardaginn fyrsta, mun Moby Dick hvalaskoðunarferðir bjóða gestum sínum helmingsafslátt af hvalaskoðunarferðum í tilefni dagsins. Ferðin hefst kl. 10:00 í fyrramálið og lagt verður af stað frá Keflavíkurhöfn og komið aftur kl. 13:00. „Það er von á góðu veðri á morgun og ég hvet alla til þess að skella sér í þessa fyrstu hvalaskoðunarferð ársins, “ sagði Helga Ingimundardóttir, framkvæmdastjóri Moby Dick, í samtali við Víkurfréttir.

Verð í hvalaskoðunina er kr. 1600,- á mann og tilvalið að muna eftir myndavélunum.

www.dolphin.is


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn