Helmingi fleiri umsóknir í Háskólabrú Keilis en í fyrra
-Umsóknarfrestur lengdur vegna gríðarlegs áhuga og skólagjöld lækkuð um 40%
Vel yfir tvöfalt fleiri umsóknir eru í Háskólabrú Keilis nú en á sama tíma í fyrra og er það mesti fjöldi umsókna sem borist hefur á sambærilegum tíma síðan árið 2009. Vegna mikils áhuga og fyrirspurna um námið undanfarna daga hefur skólinn ákveðið að framlengja umsóknarfrest um nám á komandi haustönn og verður unnið úr þeim eins og þær berast fram að sumarleyfum starfsfólks Keilis í júlí. Námsráðgjafar Keilis og forstöðumaður Háskólabrúar vinna þessa dagana úr umsóknum og eru allir umsækjendur sem uppfylla skilyrði boðaðir í persónuleg inntökuviðtöl. Vegna fjölda umsókna biður skólinn umsækjendur um að sýna biðlund en haft verður samband við þá sem allra fyrst.
Á þeim tíu árum sem boðið hefur verið upp á aðfaranám til háskóla í Keili, hafa á bilinu 150 til 200 nemendur útskrifast árlega úr stað- og fjarnámi Háskólabrúar. Samtals hafa yfir 1.500 einstaklingar lokið náminu og hefur mikill meirihluti þeirra - eða um 85% - haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis við góðan orðstír.
Keilir hefur boðið upp á aðfaranám til háskóla, frumgreinanám fyrir einstaklinga sem hafa ekki lokið stúdentsprófi, frá árinu 2007. Miklar framfarir hafa orðið á þessum tíma í kennsluháttum samhliða breyttum þörfum og kröfum nemenda, og hefur Keilir brugðist við með því að innleiða nýjungar í kennsluháttum og fjölbreyttari fyrirkomulag námsins. Nú geta nemendur því valið að sækja Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi, bæði með og án vinnu. Allt miðast þetta við að nemandinn geti tekið námið á sínum forsendum.
Það er því ljóst að fólk er ánægt með nýtt fyrirkomulag og lægri skólagjöld, en í haust er í fyrsta skipti hægt að hefja nám í Háskólabrú í staðnámi eða fjarnámi með og án vinnu. Við þessar breytingar á fyrirkomulagi námsins ákvað Keilir einnig að lækka skólagjöld í Háskólabrú um 40% frá og með skólaárinu 2017 - 2018.
Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans. Keilir hefur markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir. Kannanir í Háskóla Íslands á gengi nýnema hafa sýnt að nemendur sem koma úr Háskólabrú Keilis eru meðal þeirra efstu yfir þá sem telja sig vel undirbúna fyrir háskólanám.