Hellulögn hefst í næstu viku
Framkvæmdir við Hafnargötuna standa nú sem hæst. Þessa dagana er verið að ljúka við lagnir í götunni og í næstu viku verðu hafist handa við að helluleggja svæðið á milli Aðalgötu og Tjarnargötu.Hafnargatan mun taka miklum stakkaskiptum á þessum slóðum fyrir þjóðhátíðardaginn, en þessum hluta framkvæmdarinnar, þ.e. á milli Tjarnargötu og Aðalgötu á að vera lokið eigi síðar en 16. júní. Þá verður haldið áfram út að DUUS-húsum og þegar ljósanótt gengur í garð í byrjun september hefur gamli miðbærinn tekið á sig nýja og glæsilega mynd.
Myndin er frá framkvæmdum framan við Hafnargötu 15.
Myndin er frá framkvæmdum framan við Hafnargötu 15.