Bygg
Bygg

Fréttir

  • Hellir fannst í holu á Tjarnargötu
    Ellert í Tjarnargötuhelli. Hellirinn er manngengur að hluta en erfitt er að komast inn í hann.
  • Hellir fannst í holu á Tjarnargötu
    Holan á Tjarnargötunni þar sem vatnslögn gaf sig og stór hellir kom í ljós. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 1. apríl 2014 kl. 09:51

Hellir fannst í holu á Tjarnargötu

Biluð vatnslögn hefur orðið til þess að í stór og mikill hellir hefur nú komið í ljós undir Tjarnargötu í Keflavík. Starfsmenn frá HS Veitum grófu niður á hellinn þegar jarðsig kom í ljós Tjarnargötunni á móts við Sóltún um kvöldmatarleitið í gær.

„Það kom í ljós talsvert jarðsig hér á Tjarnargötunni síðdegis í gær og ljóst að vatn hefur runnið hér lengi og skolað í burtu lausum jarðvegi. Þegar við grófum okkur hér niður úr malbikinu kom í ljós þetta gat í klöppinni hér undir og þar er þó nokkur hvelfing,“ segir Finnur Helgason, starfsmaður hjá HS Veitum.

Ellert Grétarsson er mikill áhugamaður um hellaskoðun og myndir hans af undirheimum Reykjanesskagans hafa farið víða. Ellert var því fyrsti maður til að skríða ofan í holuna í gærkvöldi. Hellirinn er manngengur að hluta en hvelfingin er um 15 fermetrar.

Talsverð aðgerð verður að fylla upp í hellinn. Ellert var þó ekki á því að hellinum yrði eyðilagður. Hann vill að þessi sérstaki hellir í miðjum bænum verði varðveittur. Ellert ætlar að mynda hellinn í dag og verða myndirnar þá settar hér á vef Víkurfrétta.


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn