Bygg
Bygg

Fréttir

Helguvíkurálver: Umhverfisráðherra taki af skarið
Fimmtudagur 21. febrúar 2008 kl. 14:41

Helguvíkurálver: Umhverfisráðherra taki af skarið

Aðstandendur síðunnar www.hengill.nu, sem sett var upp til bjargar Ölkelduhálsi og nágrenni, hafa sent frá sér áskorun þar sem skorað er á umhverfisráðherra að sjá til þess að framkvæmt verði heildstætt umhverfismat fyrir álver í Helguvík og allar tengdar framkvæmdir að Bitruvirkjun meðtaldri. Er vísað í kæru Landverndar þar að lútandi.

„Samkvæmt áliti Skipulagsstofnunar vegna álvers í Helguvík er Ölkelduháls eitt þeirra háhitasvæða sem fórnað yrði ef áform um álverið ná fram að ganga. Sú fórn væri með öllu óréttlætanleg. Ölkelduháls og umhverfi hans er dýrgripur á náttúruminjaskrá og það ber að virða. Því skorum við á umhverfisráðherra, Þórunni Sveinbjarnardóttur, að sjá til þess að framkvæmt verði heildstætt umhverfismat fyrir álver í Helguvík og allar tengdar framkvæmdir að Bitruvirkjun meðtaldri og vísum þar í kæru Landverndar,“ segir í áskoruninni sem send var út í dag.

Þar segir ennfremur:
„Þrátt fyrir að mjög mikil óvissa ríki bæði um orkuöflun og orkuflutninga fyrir álver í Helguvík er að skilja á yfirlýsingum Garðs og Reykjanesbæjar að til standi að hefjast handa við byggingu álversins fljótlega. Sú fyrirætlan er beinlínis til þess fallin að setja ómaklegan þrýsting á önnur sveitarfélög sem hlut eiga að máli. Slíku verklagi ber að afstýra með öllum tiltækum ráðum.

Aðeins lítill hluti orkunnar sem til þarf, eða u.þ.b. 20%, er í landi Reykjanesbæjar en enga orku er að finna í Garði. Ásælni sveitarfélaganna tveggja í auðlindir annarra tekur út yfir allan þjófabálk og við slíkan framgang er ekki hægt að una. Ítrekaðar ábendingar Skipulagsstofnunar um að eyða þurfi óvissu um orkuöflun og orkuflutninga áður en framkvæmdir hefjast eru að engu hafðar með yfirlýsingum sveitarfélaganna tveggja og talsmanna Norðuráls undanfarna daga.“


Mynd: Útivistarunnendur virða fyrir sér útsýnið af Ölkelduhálsi. Ljósmynd: elg.


Bílakjarninn
Bílakjarninn