Bygg
Bygg

Fréttir

Helguvíkurálver : Umhverfisstofnun gefur út starfsleyfi
Fimmtudagur 11. september 2008 kl. 11:18

Helguvíkurálver : Umhverfisstofnun gefur út starfsleyfi













Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi vegna álvers í Helguvík og verður heimilt að framleiða allt að 250.000 tonn af áli árlega. Norðuráli verður meðal annars skylt að nýta sér bestu fáanlegu tækni við mengunarvarnir, segir á vef Reykjanesbæjar.

Enn á eftir að tryggja álverinu losunarheimildir og tryggja raforkuflutninga.

Landvernd hafði sent Umhverfisstofnun athugasemdir vegna tillögu að starfsleyfi Norðuráls í Helguvík og taldi í þeim ótímabært að veita leyfið þar sem vitneskja um grundvallarþætti starfsemninnar væri ekki fyrir hendi. Ekki liggi fyrir hvort eða hvaðan orka fáist í álverið og mikið ósætti sé um fyrirkomulag á orkuflutningum. Þá sé margt sem bendir til þess að erfitt gæti reynst að uppfylla almennar skuldbindingar Íslands um hámark 10% aukningu í losun gróðurhúsalofttegunda ef til kemur aukinn PFC losun á samningstímabilinu 2008-2012, segir í athugasemdum Landverndar sem birtist á heimasíðu samtakanna,www.landvernd.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn