Langbest nýr matseðill 2 dagar
Langbest nýr matseðill 2 dagar

Fréttir

Helgistund tileinkuð brunanum í Skildi
Sunnudagur 30. nóvember 2025 kl. 12:29

Helgistund tileinkuð brunanum í Skildi

„Að 90 árum liðnum - Bruninn í Skildi“ er yfirskrift helgistundar sem verður í Keflavíkurkirkju í kvöld kl. 20:00 tileinkuð brunanum í Skildi en nú eru liðin 90 ár frá þeim hörmulega atburði sem þar varð á jólatrésskemmtun.

Dagný Maggýjar flytur hugleiðingu. Sr. Erla þjónar ásamt Helgu og Þóreyju messuþjónum.

Aðalbros
Aðalbros

Gengið verður að Skjaldarreit og lagður blómsveigur við lifandi ljós. Kórinn syngur fallega sálma undir stjórn Arnórs organista.

Lögreglumenn og Brunavarnir Suðurnesja standa heiðursvörð. Öll eru hjartanlega velkomin.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir