Helgin lítur vel út
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhring
Norðvestlæg átt 3-8 m/s og bjart með köflum. Hiti 13 til 18 stig.
Landið næstu daga:
Á fimmtudag, föstudag og laugardag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt og yfirleitt bjartviðri. Hiti víða 10 til 15 stig að deginum, en allt að 20 stigum í innsveitum.
Á sunnudag:
Hægviðri og bjart með köflum, en líkur á skúrum S- og V-lands. Áfram hlýtt í veðri.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna):
Útlit fyrir suðvestlæga átt með vætu á V-verðu landinu, en annars þurrt að mestu. Kólnar heldur V-lands.