Bygg
Bygg

Fréttir

Hékk framan á vélarhlíf bifreiðar á ferð
Föstudagur 7. nóvember 2014 kl. 10:14

Hékk framan á vélarhlíf bifreiðar á ferð

Lögreglumenn á Suðurnesjum voru við umferðareftirlit í vikunni þegar þeir komu auga á bifreið, sem ekið var um götur Keflavíkur og hékk strákur framan á vélarhlífinni. Þetta ferðalag var að sjálfsögðu stöðvað snarlega.

Ræddu lögreglumenn alvarlega við piltinn og bílstjórann sem einnig er ungur að árum. Kváðust piltarnir sjá mjög eftir þessu uppátæki og gera sér grein fyrir þeirri hættu sem það kynni að skapa. Þá var haft samband við foreldra piltanna, sem kunnu lögreglu þakkir fyrir að hafa stöðvað þetta glæfralega háttarlag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn