Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Heitt vatn: Notendur greiði samkvæmt notkun
Fimmtudagur 1. júlí 2010 kl. 17:18

Heitt vatn: Notendur greiði samkvæmt notkun

HS Veitur áætla að setja upp rennslismæla fyrir heitt vatn á heimilum í framtíðinni sem leysa munu hemlana af hólmi. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um tímasetningu, að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra HS Veitna. Heimilin munu þá greiða samkvæmt notkun. Að sögn Júlíusar mun húshitunarkostnaður að meðaltali verða sá sami en hjá einstökum notendum geti hann ýmist hækkað eða lækkað.
HS Veitur auglýstu útboð í síðustu viku þar sem óskað er eftir tilboðum í uppsetningu á rennslismælum fyrir heitt vatn í fyrirtækjum á Suðurnesjum. Skipta á út hemlum í heitavatnsgrindum fyrir mælana. Heildarmagn er um 900 mælar og skal verkinu lokið fyrir 20. desember á þessu ári.

Júlíus segir helstu ástæðuna fyrir þessari breytingu þá að sífellt erfiðara verði að fá hemla sem standist kröfur HS Veitna um nákvæmni og stöðugleika. Mælarnir gefi aukið svigrúm til stjórnunar nýtingar en hætta geti skapast á kostnaði séu húskerfi ekki í góðu lagi og rétt jafnvægisstillt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Þar sem settir verða upp mælar verður greitt samkvæmt þeim. Mælar eru þó ekki eitthvað sem er alveg nýtt hjá HS Veitum hf og voru þannig um síðustu áramót 238 mælar í kerfinu á móti 6.715 hemlum. Svæði eins og flugstöðvarsvæðið hafa frá upphafi verið nánast eingöngu með mæla,“ segir Júlíus.
Að meðaltali er gert ráð fyrir að kostnaður verði sá sami en hjá einstökum notendum getur kostnaður ýmist lækkað eða hækkað eftir því hver nýting viðkomandi var á því magni sem hemlastillingin gat gefið, svarar Júlíus aðspurður um það hvaða áhrif þessar breytingar muni hafa á kostnað.

„Það hefur alla tíð verið í gildi gjaldskrá, annars vegar fyrir hemla og hins vegar fyrir mæla. Gjaldskráin hefur byggt á þeirri gefnu forsendu að nýting á hemli væri 67 - 68% þ.e. það væri það magn sem viðskiptavinur nýtti af því hámarki sem hemillinn getur gefið. Þeir sem hafa nýtt hámarksmagnið betur en það gætu hækkað eitthvað og hinir þá lækkað eitthvað. Gjaldskrá fyrir hemil byggir á því að nægilegt magn sé keypt til að hita upp hús að vetrarlagi en notkunin að sama skapi þá mun minni að sumarlagi þó stilling hemilsins og mánaðarleg greiðsla sé hin sama,“ segir Júlíus sem setur upp eftirfarandi dæmi í formlegu svari til Víkurfrétta:

Hver mínútulíter getur á ársgrundvelli gefið 1 x 60 mín. x 24 klst. x 365 dagar eða 525,6 tonn á ári. Hvert tonn kostar án vsk 95,66 og árlegur kostnaður væri þá 50.279 með fullri nýtingu hemils en gjaldskrá fyrir mínútulíter í ár er 34.082 eða þá hin sama miðað við 67,8% nýtingu.