Fimmtudagur 6. maí 1999 kl. 13:03
HEITT SÍMTÓLIÐ HJÁ BRUNAVÖRNUM
Mánudagurinn var annasamur hjá Brunavörnum Suðurnesja og útköllin alls 11 þegar upp var staðið. Dagurinn hófst með brunanum á Hafnargötu 82 og lauk með sinubruna í Garði. Níu útköll voru vegna sjúkraflutninga og á einum stað var vatni ofaukið og leitað aðstoðar B.S til að þurrka upp.