HSS
HSS

Fréttir

Heitar umræður á fundi ASÍ í Reykjanesbæ í kvöld
Þriðjudagur 18. nóvember 2008 kl. 23:05

Heitar umræður á fundi ASÍ í Reykjanesbæ í kvöld

Bílakjarninn
Bílakjarninn



Fyrsti fundurinn í fundaherferð Alþýðusambands Íslands var haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ í kvöld.  Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ var þar með framsögu og Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja ávarpaði fundinn. Yfirskrift herferðarinnar er Áfram Ísland - fyrir hag heimilanna.

Fundurinn var líflegur og heitar umræður m.a. um verðtryggingu lána, en áhyggjur fundarmanna af hækkandi lánum var augljós og fundarmenn vildu vita hvert Alþýðusamband Íslands stefndi í þeim málum.

Fundurinn samþykkti ályktun þar sem stjórnvöld voru m.a. hvött til að standa vörð um hagsmuni heimilanna. Komið yrði í veg fyrir að fólk lendi í alvarlegum greiðsluerfiðleikum eða missi ofan af sér. Jafnframt var brýnt fyrir stjórnvöldum að taka afstöðu til Evrópusambandsins og upptöku evrunnar og að tryggja að fólki hér standi til boða sambærileg húsnæðislán og bjóðast í nágrannalöndunum.



Ályktun fundar stéttarfélaganna í Reykjanesbæ 18. nóvember 2008.

Fjölskyldan og heimilin er grunneining samfélagsins, hornsteinninn sem við treystum á.  Því leggur verkalýðshreyfingin  megin áherslu á að heimilin verði varin með öllum ráðum í því gjörningaveðri  sem nú gengur yfir. Við krefjumst þess að stjórnvöld búi heimilunum öruggt skjól. Þar vegur þyngst  að verja störfin og tryggja þeim sem misst hafa vinnuna ný störf.  Þá verður með öllum ráðum að  koma í veg fyrir að óðaverðbólgu festist hér í sessi.  Það er ekki ásættanlegt að verð á nauðsynjum  hækki um tugi prósenta á sama tíma og verðbólgan hækkar lánin okkar.  Við verðum að stöðva þessa  þróun með öllum ráðum.

Fundurinn krefst þess að stjórnvöld grípi nú þegar til markvissra aðgerða sem leiði til þess að  íslenskum almenningi standi til boða sambærileg húsnæðislán og bjóðast í nágrannalöndum okkar.

Stjórnvöld verða að sýna kjark og taka nauðsynlegar ákvarðanir til framtíðar um leið og fortíðin  verður gerð upp án undanbragða. Við verðum að sameinast um einu færu leiðina til endurreisnar.

Lán frá alþjóðasamfélaginu  eru mikilvæg til að fá gjaldeyri inn í landið og til að tryggja að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki. Jafnframt  er nauðsynlegt að ríkisstjórnin gefi út yfirlýsingu um að Ísland  muni sækja um aðild að ESB og taka upp evru. Þannig aukum við trúverðugleika og stöðugleika  krónunnar til skemmri tíma litið, þangað til við getum tekið upp evru. Þannig tryggjum við best hag  heimilanna til framtíðar. Endurskoðun kjarasamningsins frá febrúar sl. og samstarf við önnur samtök  opinberra starfsmanna um sameiginlega kjarastefnu til næstu ára er einnig mikilvægt úrlausnarefni.
Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir erfiðum verkefnum. Alþýðusamband Íslands og aðildarsamtök þess lýsa sig reiðubúin til að koma að því endurreisnar- og uppbyggingarstarfi sem framundan er.  Okkar áherslur eru einfaldar og skýrar. Við viljum byggja upp samfélag með fjölbreyttu atvinnulífi og  góðri menntun fyrir alla.  Við viljum byggja upp velferðarsamfélag að norrænni fyrirmynd.  ASÍ býður stjórnvöldum og atvinnurekendum til samstarfs um „íslensku leiðina“ út úr efnahagsþrengingunum og til framtíðar.

Áfram Ísland.

Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson