Heitavatnsaðgerð í húsum í Grindavík - Grindvíkingar afhendi lykla
Almannavarnir, í samstarfi við HS Veitur fóru í það í gærkvöldi að koma á heitu vatni á hús vestan Víkurbrautar í Grindavík (Sjá rýmingarkort Grindavíkur: rauða og græna hverfið).
Mikil áhersla var lögð á þessa framkvæmd þar sem talsvert frost er á svæðinu og verður næstu daga. Því var nauðsynlegt var að fara í þessa aðgerð til að koma í veg fyrir mikið eða meira tjón á húsum.
Til þess að hægt sé að kanna ástand hitakerfa fasteigna er þess nú óskað að íbúar Grindavíkur í hverfunum sem skilgreind eru í rauða og græna hverfinu (sjá rýmingarkort Grindavíkur og götulista hér að neðan) komi með lykla að íbúðum sínum, annað hvort í Þjónustumiðstöð Almannavarna í Tollhúsinu við Tryggvagötu eða í húsnæði Brunavarna. Suðurnesja að Flugvöllum 33 í Reykjanesbæ. Íbúar eru hvattir til þess að koma með lyklana á þessa staði eins fljótt og auðið er. Móttaka lykla er á þessum tveimur stöðum til klukkan 17:00. Almannavarnir hafa fengið til liðs við sig viðbragðsaðila pípulagningamanna til að skoða þau húsnæði sem eru á þessu skilgreinda svæði, þ.e. vestan Víkurbrautar.
Þau sem ekki ná að koma með húslykla á þessa tvo skilgreindu staði geta komið með þá á íbúafund sem haldinn verður kl. 17:00 í dag í Laugardagshöllinni. Íbúar annarra svæða geta einnig komið með húslykla af sínum íbúðum á íbúafundinn.
Eins og staðan er núna þá er vera íbúa óheimil í Grindavík en viðbragðsaðilar hafa verið þar að störfum.
Móttaka lykla í dag er í Þjónustumiðstöðinni við Tryggvagötu og á Slökkvistöðinni í Reykjanesbæ við Flugvelli. Einnig er hægt að koma með húslykla á íbúafundinn í dag.
Þær götur sem um ræðir eru:
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|