Heimsóknargestir á HSS hringi áður en þeir koma
Þeim tilmælum er komið til heimsóknargesta D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja að þeir hafi samband símleiðis við deildina í síma 422 0640 (vaktsími D-deildar) og fái leiðbeiningar um aðkomu að deildinni vegna smitgáttar.
Hluti Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur verið settur í sóttkví eftir að nokkrir sjúklingar, læknar og annað starfsfólk smitaðist af svokallaðri Noro-veiru, sem er bráðsmitandi iðrasýking. Tveir af læknum heilsugæslunnar eru einnig veikir í dag en starfsemi heilsugæslu hefur þó gengið eðlilega fyrir sig í dag.
Merkingar hafa verið settar upp víða um Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Er mælst til þess að þeir sem eiga erindi á HSS virði þessar merkingar og fari alls ekki inn á deildir sem settar hafa verið í sóttkví.