HSS
HSS

Fréttir

Þriðjudagur 13. maí 2003 kl. 11:58

Heimili og skóli: Foreldrar í Reykjanesbæ verðlaunaðir

FFGÍR , Foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ fengu hvatningarverðlaun Heimilis og skóla sem afhent voru með viðhöfn í Þjóðmenningarhúsi 6.maí s.l. Formenn foreldrafélaganna ásamt Helgu Margréti Guðmundsdóttur verkefnisstjóra og starfsmanni RÁRR (Reykjanesbær á réttur róli) veittu verðlaununum viðtöku. Það var Jónína Guðmundsdóttir skólastjóri í Holtaskóla sem tilnefndi FFGÍR til verðlaunanna vegna nýútkominna handbóka foreldrafélaganna sem kynntar voru í febrúar s.l.Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru nú veitt í áttunda sinn og að auki veittu landssamtökin sérstök hvatningarverðlaun til fjögurra aðila. Aðalmarkmiðið með veitingu verðlaunanna er að vekja athygli á gróskumiklu starfi sem unnið er á fjölmörgum sviðum innan skólastarfsins. Alls bárust 18 tilnefningar hvaðanæva að af landinu.

KYNNINGARHERFERÐ STENDUR YFIR
Undanfarnar vikur hefur staðið yfir kynningarherferð á handbókunum í grunnskólum Reykjanesbæjar. Í þeim eru settir fram starfshættir og markmið foreldrafélaganna og er útgáfa þeirra liður í gæðaverkefninu “Betri foreldrafélög í Reykjanesbæ” sem er verkefni sem foreldrafélögin og foreldraráðin samþykktu að taka þátt í á þessu skólaári á sameiginlegum vettvangi FFGÍR. Handbækurnar hafa verið kynntar á kennarafundum fyrir bekkjarfulltrúum og starfsfólki skólanna. Fjölmiðlar greindu frá útgáfu handbókanna í marsbyrjun. Foreldrar og allur almenningur getur skoðað þær á heimasíðum skólanna og liggja þær frammi á bókasöfnum og hjá skólariturum.

GERIR STARFIÐ MARKVISSARA OG AUÐVELDAR STJÓRNARSTÖRF
FFGÍR fór af stað með þetta gæðaverkefni fyrir tilstilli Jóhanns B. Magnússonar formanns ÍRB (Íþróttabandalags Reykjanesbæjar) með það að markmiði að gera starf foreldrafélaganna markvissara og auðvelda störf stjórnarfólks. RÁRR styrkir verkefnið með því að leggja til verkefnisstjóra.
Með handbókunum hefur FFGÍR unnið mikið og markvisst frumkvöðlastarf sem á eftir að styrkja bæði innra starf hvers skóla sem og samskipti skólanna sín á milli og við hið ytra samfélag. Handbækurnar miðla uppbyggingu starfsins á milli ára og auðvelda þannig nýju fólki að koma að foreldrastarfinu. Svona handbækur ættu að vera til í öllum skólum landsins! segir í frétt frá samtökunum Heimili og skóli.

HVER SKÓLI HEFUR SÍNA SÉRSTÖÐU
Handbækurnar eru hver með sínu sniði. Þar kynna félögin t.d. merki sitt og lit. Njarðvíkurskóli er græni skólinn, Holtaskóli guli skólinn, Myllubakkaskóli er rauði skólinn og Heiðarskóli er blái skólinn.
Segja má að handbækurnar séu afrakstur þeirrar ómældu vinnu sem fram hefur farið undanfarin ár innan félaganna og tilkoma FFGÍR orðið þeim hvatning til dáða.
Með aukinni upplýsingamiðlun vilja foreldrar efla samvinnu heimila og skóla.
Þannig leggja foreldrar sitt af mörkum til að byggja upp jákvæðan skólaanda á svæðinu og bæta líðan barna sinna í skólum sem leiðir án efa til bætts námsárangurs.
Bílakjarninn
Bílakjarninn