Heimild um 300 milljóna kr. aukningu stofnfjár samþykkt
Tillaga um heimild til stjórnar að hækka stofnfé Sparisjóðsins í Keflavík í áföngum um allt að 300 milljónir króna var samþykkt á aukafundi stofnfjáraðila síðdegis í gær.Verður það gert með útgáfu og sölu nýrra stofnfjárbréfa.Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri sagði að þessi aðgerð væri fyrst og fremst til að halda uppi sterku eiginfjárhlutifalli sjóðsins. Stefna hans væri sú að þetta hlutfall færi ekki niður fyrir 10% jafnvel þó lögin gerðu ráð fyrir að það væri lægst 8. Auk þess væri þessi ákvörðun gerð til að geta boðið viðskiptavinum Sparisjóðsins bréf sem þeir gætu nýtt sér til skattalegs afsláttar. Nokkur umræða varð á fundinum um harða samkeppni á peningamarkaði svo og hlutafélagsvæðingu. Geirmundur sagði að hin mikla umræða á aðalfundinum hefði ýtt verulega við forsvarsmönnum sparisjóðanna og færi nú fram mikil sameiginleg vinna á vettvangi þeirra um framtíðarskipan sparisjóðanna. Gestur fundarins var Þórólfur Jónsson, lögfræðingur sem flutti erindi og sýndi fram á kosti og galla hlutafjárvæðingarinnar og hvernig haga mætti þeirri breytingu. Hann greindi frá því hvernig Danir stóðu að svona breytingum hjá sér. Gerður var góður rómur að erindi Þórólfs og urðu nokkrar umræður í framhaldinu. Tómas Tómasson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri í Keflavík sagði að það eina rétta í harðri samkeppni væri að sparisjóðirnir á Íslandi sameinuðust. Hann sagðist óttast það ef einstakir sjóðir færu að hlutafélagsvæðast. Tómas sagði að breyta þyrfti lögum svo sparisjóðirnir gætu breytt rekstrarformi sínu en í stofnlögum þeirra er gert ráð fyrir því að eigið fé þeirra renni til menningarmála á viðkomandi starfssvæði. „Ég hef ekki áhyggjur af tæknilegum atriðum. Þau eru öll leysanleg“, sagði Tómas og benti m.a. á hvað Danir gerðu en þeir stofnuðu m.a. sjálfseignarfélög um eigið fé sparisjóðanna. „Við verðum fyrst og fremst að flýta þessu máli því Sparisjóðirnir eru að verða varnarlausir í harðri samkeppni peningastofnana á Íslandi ídag. Ef sparisjóðirnir myndu sameinast í einn mætti ná fram gríðarlegri hagræðingu og sterku félagi“, sagði Tómas.Benedikt Sigurðsson, formaður stjórnar Sparisjóðsins sagði að afstaða stjórnarinnar um breytingar á rekstrinum væru jákvæðar en flýta þyrfti þeirri vinnu.