HSS
HSS

Fréttir

Heimild til að selja 80% hlut bæjarins í Víkurbraut 58 ehf.
Föstudagur 20. júlí 2012 kl. 10:14

Heimild til að selja 80% hlut bæjarins í Víkurbraut 58 ehf.

Bæjarráð Grindavíkur hefur veitt bæjarstjóra heimild til að undirrita kaupsamning um sölu á 80% hlut Grindavíkurbæjar í Víkurbraut 58 ehf, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Kvenfélag Grindavíkur og Ungmennafélag Grindavíkur, meðeigendur í félaginu, hafa nú tilboð í sína hluti til umfjöllunar.

Sem kunnugt er hafa viðræður um sölu fasteignarinnar að Víkurbraut 58, Festi, staðið lengi, en upp úr slitnaði í vor. Nú hafa viðræður við sömu aðila leitt til þess að gert er tilboð í félagið sjálft. Kaupendur hafa hug á að breyta húsnæðinu í gistiheimili og verslunar- og þjónusturými, sem samrýmist hugmyndum um nýtt miðbæjarskipulag bæjarins sem nú er í vinnslu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn