Heimagisting á Suðurnesjum stöðvuð
	Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið starfsemi svokallaðrar Airbnb heimagistingar í umdæminu þar sem engin rekstrar – né starfsleyfi reyndust vera til staðar. Var því um að ræða brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
	
	Lögregla mun á næstunni heimsækja fleiri staði þar sem heimagisting er auglýst á Airbnb og athuga hvort tilskilin leyfi séu til staðar.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				