Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Heimagerður flugeldur sprakk í hendi drengs
Þriðjudagur 3. janúar 2017 kl. 10:26

Heimagerður flugeldur sprakk í hendi drengs

- Landhelgisgæslan eyddi þeim heimagerðu flugeldum sem eftir voru

Drengur á unglingsaldri slasaðist á hendi á nýárskvöld þegar heimagerður flugeldur sprakk í hendi hans. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og reyndist hafa hlotið annars stigs bruna. Fleiri heimagerðar sprengjur reyndust vera til staðar og komu aðstandendur piltsins þeim á lögreglustöðina í Reykjanesbæ. Landhelgisgæslan sá svo um að eyða þeim. Barnaverndarnefnd var tilkynnt um málið vegna ungs aldurs piltsins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024