Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Heimafólk að venju í öllum helstu hlutverkum
Úr árgangagöngu Ljósanætur árið 2014
Fimmtudagur 3. september 2015 kl. 16:51

Heimafólk að venju í öllum helstu hlutverkum

– Ljósanótt í Reykjanesbæ haldin í 16. skiptið

Menningar- og fjölskylduhátíðin Ljósanótt í Reykjanesbæ verður haldin í 16. skiptið í ár og hefst í dag, fimmtudag 3. september og stendur til sunnudags 6. september. Ljósanótt telst til einnar stærstu fjölskylduhátíðar landsins og lögð er áhersla á að öll fjölskyldan njóti saman.

Heimafólk er að venju í öllum helstu hlutverkum, hvort heldur um tónlist eða myndlist er að ræða og margar sýningar og fjölbreyttir tónleikar í boði alla dagana.  Stór hópur fólks kemur að undirbúningnum eins og venjulega og eru þar á ferðinni bæði íbúarnir sjálfir, ýmis  félagasamtök og stofnanir og svo auðvitað starfsmenn. Vefur Ljósanætur ljosanott.is er tilbúinn og fjöldi viðburða nú þegar kominn inn en íbúar og fyrirtæki eru enn að setja inn upplýsingar um nýja viðburði því alltaf bætist eitthvað við. KarfaN hefur að venju umsjón með sölutjöldum á hátíðarsvæðinu og kennir þar ýmissa grasa, handverk, matasala o.fl.  

Ljósanótt var þjófstartað í gærkvöldi með kvöldopnun verslana við Hafnargötu og frumsýningu tónleika í Andrew´s á vegum Með Blik í auga sem í ár bera heitið Lög unga fólksins þar sem ýmsir stórsöngvarar halda áfram að rekja fyrir okkur tónlistarsögu Íslendinga.  Þessir tónleikar verða einnig á sunnudeginum.

Í dag, fimmtudag, er hátíðin sett við Myllubakkaskóla kl. 10.30 með aðstoð allra leik- og grunnskóla bæjarins.  Seinni partinn opna svo flestar listsýningarnar og bæjarbúum öllum er boðið í Duus Safnahús kl. 18.00 þann dag en þá verða opnaðar þar fjórar nýjar sýningar.  Þar ber hæst ljósmyndasýningin í Listasalnum, Andlit bæjarins sem er samstarfsverkefni Listasafnsins og Ljósops sem gengur út á það að ná ljósmyndum af öllum bæjarbúum. Í gryfjunni sýnir ungur hönnuður héðan úr bænum Arna Atladóttur verk sín, í Stofunni í Bryggjuhúsinu verður finnskur textíllistamaður, Eija Pirttilahti og í Bíósalnum verður sýning í tilefni 100 ára afmælis Keflavíkurkirkju sem er samstarfsverkefni Byggðasafnsins og kirkjunnar. Upplýsingar um aðrar sýningar má sjá á ljosanott.is.

Tónlistardagskrá á smábátabryggjunni við Duus

Á föstudeginum fer fram tónlistardagskrá á smábátabryggjunni við Duus og þar býður Skólamatur upp á sína árlegu Ljósanætursúpu við undirleik Bæjarstjórnarbandsins en það er eins og nafnið bendir til hljómsveit samansett úr bæjarfulltrúum. Ingó veðurguð mun svo stjórna fjöldasöng í lokin. Unglingaball verður haldið í Stapa og veitingahúsin í bænum eru flest með skemmtilega dagskrá.  Áhugaverð nýjung verður svo í boði síðar þetta kvöld þegar íbúar í gamla bænum bjóða til heimatónleika og er þetta einmitt skemmtilegt dæmi um sjálfsprottin verkefni íbúa bæjarins.

Stærsti dagurinn á laugardaginn

Laugardagurinn er eins og áður stærsti dagurinn með sinni einstöku árgangagöngu, sögugöngu, leiktækjum, barnadagskrá í umsjón Leikhópsins Lottu og stórtónleikum á útisviðinu á Bakklág um kvöldið.  Á tónleikunum ber hæst að við fáum að heyra valda kafla úr   tónlistarsviðburðinum Sveitapiltsins draumur, Rúnar Júl 70 ára sem færri en vildu sáu í Stapa í vor.  Einnig koma fram keflvísku böndin Kolrassa krókríðandi, Sígull og Pakkið. Eftir flugeldasýninguna, sem er í boði HS Orku eins og áður, mun Jónas Sig og ritvélarnar leika nokkur lög áður en fjölskyldufólkið tygjar sig heim og hinir koma sér á djammið í veitingahúsunum en búast má við góðri dagskrá hjá þeim að venju.

Á sunnudeginum verða öll sölutjöld enn opin og einnig allar sýningar þannig að fólk hefur tíma til að njóta í rólegheitunum þess sem það missti af í fjörinu á laugardeginum.  Einnig er í undirbúningi skemmtileg menningardagskrá í Höfnunum þennan dag þar sem íbúar bjóða gestum til myndlistarsýninga, sögudagskrár og tónleika þar sem Elíza Newman kemur m.a. fram.
Svo er bara að vera kátur og hlakka til að fjölskyldan geti skemmt sér saman á Ljósanótt.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024