Heildaraflinn 23 þúsund tonn í mars
Heildarafli á Suðurnesjum í mars nam rúmum 23 þúsund tonnum, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Fiskistofu. Þorskaflinn var 5,728 tonn og ýsuaflinn 2,340 tonn.
Þorskaflinn í Grindavík var 3,164 tonn, í Sandgerði 1,570 tonn og tæpum þúsund tonnum var landað í Keflavík.
Þetta er mun meiri heildarafli en í mars á síðasta ári þegar hann nam 14,251 tonni. Mest munar um aukningu í loðnu en hún nemur 7,400 tonnum af heildaraflanum. Annars er aukning í algengustu tegundunum.
Mynd: Menn mokuðu upp þorski í endaðan mars. VF-mynd: elg