Bygg
Bygg

Fréttir

Heilbrigðisþjónusta í Suðurnesjabæ verði rædd við nýjan heilbrigðisráðherra
Íbúar Suðurnesjabæjar þurfa að sækja heilbrigðisþjónustu út fyrir bæjarmörkin.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 21. janúar 2022 kl. 08:24

Heilbrigðisþjónusta í Suðurnesjabæ verði rædd við nýjan heilbrigðisráðherra

Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að óska eftir fundi með nýjum heilbrigðisráðherra um þjónustu heilsugæslu í Suðurnesjabæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í október árið 2020 ályktaði bæjarráð Suðurnesjabæjar um heilbrigðisþjónustu í bæjarfélaginu.

„Bæjarráð Suðurnesjabæjar beinir því til heilbrigðisráðuneytis að íbúar Suðurnesjabæjar fái notið heilbrigðisþjónustu í sínu sveitarfélagi. Á vegum ríkisins er engin heilbrigðisþjónusta rekin í  Suðurnesjabæ, á meðan íbúar í öðrum sveitarfélögum landsins búa að því að geta notið heilbrigðisþjónustu í sínum sveitarfélögum,“ segir í afgreiðslu bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá því október 2020.

Bæjarráð bendir á að í þessu felst mismunun gagnvart íbúum Suðurnesjabæjar og hvetur heilbrigðisráðuneytið til þess að bæta hlut íbúa sveitarfélagsins að þessu leyti og beiti sér fyrir fjárheimildum í fjárlögum næsta árs í því skyni.