Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Heilbrigðisstofnun fékk 71 millj. kr. aukafjárveitingu
Fimmtudagur 27. desember 2018 kl. 13:45

Heilbrigðisstofnun fékk 71 millj. kr. aukafjárveitingu

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fékk 71,1 milljón króna aukafjárveitingu fyrir rekstrarárið 2018 en Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra ákvað að veita heilbrigðisstofnunun úti á landsbyggðinni 560 millj. kr. aukafjárveitingu. Aukningin nemur að jafnaði 3% af heildarfjárveitingu stofnananna á árinu.

Aukafjárveitingunni er fyrst og fremst ætlað að mæta halla á rekstri stofnananna sem að einhverju leyti stafar af veikleika í rekstri en má einnig rekja til ófyrirséðra útgjalda, t.d. vegna mönnunarvanda og veikinda starfsfólks sem kallar á meiri yfirvinnu og þar með aukinn kostnað.

Ákveðnar breytingar eru fyrirhugaðar á fjármögnun heilbrigðisstofnana til lengri tíma litið þar sem áhersla verður lögð á að tengja framlög í auknum mæli við árangur. Stefnt er að  því að innleiða sambærilegt fjármögnunarkerfi fyrir heilsugæslusvið stofnananna og notað hefur verið í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu frá því um mitt ár 2017 og hefur þótt gefa góða raun. Einnig er áformað að breyta fjármögnun á hjúkrunarsviðum stofnananna og taka upp daggjaldagreiðslur líkt og á hjúkrunarheimilum þar sem fjárhæðirnar taka mið af hjúkrunarþyngd íbúanna, segir í frétt frá ráðuneytinu.

Aukin framlög til heilbrigðisstofnana skiptast sem hér segir:
    •    Heilbrigðisstofnun Vesturlands, 98,8 m.kr.
    •    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, 80 m.kr.
    •    Heilbrigðisstofnun Norðurlands, 130 m.kr.
    •    Heilbrigðisstofnun Austurlands, 70 m.kr.
    •    Heilbrigðisstofnun Suðurlands, 110 m.kr.
    •    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 71,1 m.kr.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024