Heilbrigðisráðherra kynnir heilbrigðisstefnu á opnum fundi á HSS í dag
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mun kynna heilbrigðisstefnu - stefnu fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 - sem var samþykkt á Alþingi í sumarbyrjun á opnum fundi í fundarsal Heilbrigiðisstofnunar Suðurnesja í dag kl. 17:00.
Auk ráðherra mun forstjóri HSS og Alma Möller landlæknir flytja erindi á fundinum, en frummælendur munu svo taka þátt í pallborðsumræðum ásamt fulltrúa frá heilbrigðisraðuneytinu og Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar.
Allir eru velkomnir á fundinn, sem fer fram í fundarsal á þriðju hæð HSS og stendur frá 17 til 19.