HSS
HSS

Fréttir

Heilbrigðisráðherra Kína snæðir á Jia Jia
Miðvikudagur 19. febrúar 2003 kl. 12:49

Heilbrigðisráðherra Kína snæðir á Jia Jia

Heilbrigðisráðherra Kína, Ma Xyao Wei, snæddi hádegisverð á kínverska veitingahúsinu Jia Jia í Reykjanesbæ í dag áður en hann hélt í flug til Kína. Hann er hér á Íslandi ásamt kínveskri sendinefnd og kom hann til Keflavíkur til að fá alvöru kínverskan mat áður en haldið væri í flug. Að loknum hádegisverði kom hann við á nuddstofunni Yin Yang á Hafnargötu í Keflavík en ekki fylgir sögunni hvort hann hefði þegið kínverskt nudd.


Jens Beining Jia, eigandi Jia Jia og aðalkokkur staðarins, sagði í samtali við Víkurfréttir að Ma Xyao Wei og fólkið sem snæddi með honum hefði verið mjög ánægði með matinn. Hann sagði að Ma Xyao hefði talað um það að þetta væri í fyrsta skiptið sem hann fengi mat eins og heima í Kína en hann hefur farið á kínverska staði um alla Evrópu í sendiferðum sínum. „Það er auðvitað gaman að fá slíkt hrós og sýnir að maður er að gera rétta hluti“, sagði Jens.
Bílakjarninn
Bílakjarninn