Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Heilbrigðisráðherra hitti sveitastjórnarmenn á Suðurnesjum
Mánudagur 22. mars 2010 kl. 08:35

Heilbrigðisráðherra hitti sveitastjórnarmenn á Suðurnesjum


Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, hitti sveitastjórnarmenn á Suðurnesjum á föstudaginn til að ræða stöðu heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum. Að sögn Róberts Ragnarsonar, bæjarstjóra í Vogum var fundurinn  mjög gagnlegur og upplýsandi fyrir alla aðila. Var ákveðið að halda tvo fundi eftir páska með það að markmiði að koma málefnum heilbrigðisþjónustunnar á Suðurnesjum í betra horf.

Fundinn sóttu stjórnarmenn í Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, ásamt framkvæmdastjóra og bæjarstjórum.
Á fundinum var farið yfir stöðu heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum, sjúkraflutninga og hjúkrunarrýma. Ráðherra hlustaði á sjónarmið heimamanna og greindi frá sinni framtíðarsýn. Fulltrúar sveitarfélaganna á Suðurnesjum lýstu yfir áhuga á viðræðum um yfirtöku á hlutum  heilbrigðisþjónustunnar.
 
,,Samskipti fulltrúa ríkisins og sveitarstjórnarmanna á Suðurnesjum hafa ekki verið upp á það besta undanfarin misseri. Það var því afar ánægjulegt að fá heilbrigðisráðherra í heimsókn til okkar í Voga og ræða málin í góðu tómi. Það er ljóst að við höfum verk að vinna og það verður umtalsvert auðveldara og árangursríkara að gera það öll saman,“ sagði Róbert Ragnarsson í samtali við VF.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024