Heilbrigðisráðherra: fellst á hugmyndir um hjúkrunarheimili
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á hugmyndir um byggingu 30 rúma hjúkrunarheimilis í Reykjanesbæ. Gert er ráð fyrir að hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun árið 2007. Frá þessu skýrði ráðherra í bréfi sem sent var til stjórnar Dvalarheimilis aldraðra á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Reykjanesbæ.
Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar staðfestingu ráðherra. „Hér er að koma lausn á máli sem hefur legið þungt á okkur um langan tíma. Málefni hjúkrunarsjúklinga í Reykjanesbæ hafa verið í ólestri vegna tafa á byggingu D-álmu og síðan breyttra forsenda á rekstri hennar. Við unnum saman að framtíðarlausn og nú hefur hún verið staðfest af heilbrigðisráðherra. Á grundvelli þessarar staðfestingar vinnum við nú áfram að skipulagi þjónustusvæðisins og hjúkrunarheimilisins sem á að taka í notkun árið 2007,“ sagði Árni í samtali við Víkurfréttir.
Í júlí sendu stjórn Dvalarheimilis aldraðra á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Reykjanesbær, Garður og Sandgerði frá sér sameiginlegt álit um uppbyggingu öldrunarmála á svæðinu og fellst heilbrigðisráðherra á þær hugmyndir sem þar koma fram.
Þar er, eins og áður segir, gert ráð fyrir byggingu 30 rúma hjúkrunarheimilis í Reykjanesbæ sem tekið verði í notkun árið 2007. Gert er ráð fyrir staðsetningu á sérstöku þjónustusvæði í Njarðvík þar sem einnig verður nýr þjónustu- og félagskjarni fyrir eldri íbúa Reykjanesbæjar, auk öryggisíbúða tengdum hjúkrunarheimili.
Þá er gert ráð fyrir endurbótum á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði sem þýðir betri aðstöðu fyrir vistmenn en nokkra fækkun rýma þar. Einnig er gert ráð fyrir auknum stuðningi við dvalarheimilið Hlévang sem mun tímabundið sinna hópi hjúkrunarsjúklinga þar til hjúkrunarheimilið verður tekið í notkun árið 2007.
Tölvumynd: Á myndinni má sjá hugmyndir að þjónustusvæði aldraðra í Reykjanesbæ.