Heiðursborgari Grindavíkur eignast flugvöllinn í Alicante á Spáni
Guðbergur Bergsson rithöfundur og heiðursborgari Grindavíkur hefur verið í fréttum dagsins sem segja hann nú vera einn auðugasta mann Íslands og að á meðal eigna hans sé m.a. flugvöllurinn á Alicante á Spáni. Flugvöllinn og fleiri eignir á Spáni fékk Guðbergur í arf eftir spænskan vin sinn og sambýlismann um áratugaskeið. Frá þessu er greint í viðtali við Guðberg í DV í dag.
„Verðmæti eignanna eru líklega margir milljarðar. En Guðbergur segist ekkert hafa við flugvöll að gera og er á leiðinni út til að afsala sér þeirri eign,“ segir í DV.?„Ég er á leiðinni til Spánar með lögfræðingi mínum og ætla að ganga frá þessu. Ég hef ákveðið að afsala mér miklu af þessum nýfengnu eigum mínum og mun velja og hafna,“ segir Guðbergur. „Ég var að því kominn að eignast heilan flugvöll. Ég hef ekkert að gera við flugvöllinn í Alicante, þangað flýgur Iceland Express,“ segir hann og brosir breitt í viðtalinu.
Þetta eru miklar eignir sem Guðbergur ræðir um, flugvöllurinn í Alicante er sjötti stærsti flugvöllur Spánar, þangað ferðast tugmilljónir á hverju ári og á síðasta ári var 44 milljóna evra hagnaður af rekstri flugvallarins á Alicante. Flestir flugvellir á Spáni eru víst reknir með tapi en sá sem Guðbergur segist hafa fengið í arf er verðmætari en flestir þeirra. Í ár var byggð ný álma við flugvöllinn og verðmæti hennar er mörg hundruð milljónir evra. Það er því ljóst að Guðbergur er á pappírum orðinn milljarðamæringur.
Fjölmargir Suðurnesjamenn þekkja flugvöllinn á Alicante og hafa farið þar um.