Heiðhvolfið ljómaði af glitskýjum - myndir
Heiðhvolfið yfir Suðurnesjum ljómaði allur í ljósaskiptunum nú áðan og undarleg birta var yfir öllu. Það voru risavaxin glitský sem buðu upp á þetta sjónarspil.
Glitský eru ákaflega fögur marglit ský sem myndast í heiðhvolfinu, oft í um 15 - 30 km hæð. Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða við sólaruppkomu. Litadýrð þeirra er mjög greinileg því þau eru böðuð sólskini, þótt rökkvað sé eða jafnvel aldimmt við jörð.
Litadýrðin þykir minna á þá liti sem sjá má í hvítu lagi sem er innan á sumum skeljum (svonefnt perlumóðurlag í perluskeljum), og eru þau því nefnd perlumóðurský (e. nacreous clouds) í ýmsum tungumálum.
Þau myndast þegar óvenju kalt er í heiðhvolfinu (um eða undir -70 til -90 °C) og eru úr ískristöllum, eða úr samböndum ískristalla og saltpétursýru-hýdrata.
Kristallarnir í skýjunum beygja sólarljósið, en mismikið eftir bylgjulengd þess. Þannig beygir blátt ljós meira en rautt. Rauða ljósið kemur því til okkar undir öðru horni en það bláa, þannig að okkur sýnist það koma frá öðrum hluta glitskýsins. Litaröðin frá jaðri inn til miðju skýsins er stundum eins og vísuorðin: gulur, rauður, grænn og blár en oft er skýið einnig hvítt í miðju. Litirnir eru líka háðir stærðardreifingu agna í skýjunum, þannig að oft má sjá rauða, gula og græna flekki í bland, segir á Vísindavef Háskóla Íslands.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Myndir teknar í Njarðvík kl. 17:00 í dag.