Hefðu viljað flytja Gæsluna á undan Fiskistofu
Suðurnesjaþingmenn og ráðherra sammála flutningi Landhelgisgæslunnar á Ásbrú.
„Allir þingmenn kjördæmisins eru á sama máli með þetta mál en það skarast á milli innanríkis- og utanríkisráðuneytisins. Þess vegna er erfitt að koma því áfram og því verðum við að hafa trú á því. Öll rök hníga að því að flytja Gæsluna suðureftir vegna þess að aðstaðan er sprungin á Reykjavíkurflugvelli. Þeir fá ekki meira pláss þar,“ sagði Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi. Hún flutti þingsályktunartillögu síðasta haust þar sem hún mælti fyrir því að Landhelgisgæslan yrði flutt til Reykjanesbæjar. Málefni hennar hafa komist í umræðuna í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að flytja Fiskistofu með manni og mús til Akureyrar.
Úttekt Ögmundar stöðvaði málið
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar og viðskiptaráðherra, var á fundum erlendis þegar VF fékk viðbrögð frá henni á hlaupum á milli funda. Hún sagðist vera sömu skoðunar og hún hefði alltaf verið um að öll rök hnigu að því að Gæslan flytti til Reykjanesbæjar. Á Ásbrú og annars staðar í Rekjanesbæ væri mjög góð aðstaða til staðar hvort sem um væri að ræða húsnæði, hafnaraðstöðu eða aðstöðu fyrir þyrlurkost og flugvélar. Hún sagði að sú úttekt sem Ögmundur Jónasson, þáverandi innanríkisráðherra hefði látið gera og kynnt í tíð fyrri ríkisstjórnar hefði því miður sett málið til baka ef eitthvað er þar sem kostnaður við flutning hefði verið ýktur að hennar mati. Það þyrfti að hefja þá skoðun að nýju.
Fleiri starfsmenn jákvæðir
Silja Dögg segir þetta vera almannahagsmunamál og segist hafa talað við margt fólk um það síðan hún byrjaði að vinna í því. „Ég heyri æ fleiri starfsmenn Gæslunnar vera jákvæða og það er breyting frá því sem fyrst var. Fólk fór alveg í baklás til að byrja með. „Utanríkisráðherra hefur einnig lýst því yfir oftar en einu sinni að hann sjái miðstöð leitar og björgunar á Suðurnesjum. Það styður enn frekar við það að flytja Landhelgisgæsluna suðureftir.“
Líta upp úr kjördæmapotinu
„Ég hefði haldið að það að flytja Landhelgisgæsluna til Reykjanesbæjar hefði verið fyrsta val ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Af hverju þarf að styrkja Akureyri fremur en Suðurnes?“ sagði Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í kjölfar umræðu um flutning Fiskistofu til Akureyrar. Oddný var meðal flutningsmanna þingsályktunartillögu um flutning Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar þingárið 2010-2011.
Hún segir að auðvitað sé það þannig að hver og einn þingmaður líti á sitt svæði, það sé mannlegt og hún skilji vel að Hafnfirðingar vilji ekki missa störfin þaðan. „En við viljum líka halda byggð á landinu öllu og verðum að líta upp úr kjördæmapotinu. Og þá finnst mér að þurfi að skoða hvaða svæði þarf mest á því að halda að efla atvinnulífið. Það eru til dæmis Suðurnesin. Við erum með fyrsta þingmann kjördæmisins og ráðherra byggðamála, Sigurð Inga Jóhannsson, og auðvitað er ég hissa á því að hann skuli ekki líta fyrst á þetta svæði. Við erum einnig með iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiði Elínu Árnadóttur, sem gagnrýndi síðustu ríkisstjórn oft og mikið,“ segir Oddný.
Þessi frétt er úr nýjasta tölublaði Víkurfrétta sem lesa má hér: