Mánudagur 18. ágúst 2003 kl. 15:22
Haustþing kennara í Garðinum

Haustþing Kennarafélags Reykjaness fer fram í dag í Gerðaskóla í Garði. Um 270 kennarar af Suðurnesjum taka þátt í þinginu og eru fjölbreyttir fyrirlestrar í boði. Eftir fyrirlestrana setjast kennararnir niður og ræða saman um efni þeirra og hvernig nýta megi þær aðferðir sem kynntar eru til kennslu. Tilgangur haustþingsins er að kennarar af Suðurnesjum hittist og auki samskipti sín á milli, auk þess sem þátttaka þeirra styrkir þá í starfi.VF-ljósmynd: Fjöldi fyrirlestra var á haustþinginu og settust kennarar niður eftir þá og ræddu saman um efni þeirra.