Hausthátíð Varnarliðsins á laugardaginn
Árleg hausthátíð varnarliðsins verður haldin á Keflavíkurflugvelli laugardaginn 4. október n.k. Hátíðin er með "karnival" - sniði og fer fram í stóra flugskýlinu næst vatnstanki vallarins frá klukkan ellefu að morgni til þrjú síðdegis. Í boði verður fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna - lifandi tónlist, þrautir, leikir, matur og hressing og sýningar af ýmsu tagi,. Þá verða flugvélar og annar búnaður varnarliðsins til sýnis á svæðinu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda.