Sjómannakveðjur 1
Sjómannakveðjur 1

Fréttir

Hátíð tileinkuð sólsetri haldin á Garðskaga
Sunnudagur 17. júlí 2005 kl. 12:10

Hátíð tileinkuð sólsetri haldin á Garðskaga

Það eru fleiri sveitarfélög en Reykjanesbær með hátíðir tengdar ljósi og skemmtunum en Sólseturshátíð verður einmitt haldin á Garðskaga helgina 13 til 14 ágúst. Þar verður að finna fjölbreytta dagskrá til að mynda verður boðið upp á skipulagðar gönguferðir um svæðið og fjöruferðir fyrir börnin.

Haldin verður söngvakeppni og trúbadorar verða á svæðinu. Ýmiskonar leiktæki verða á staðnum fyrir börnin. Þá verða fornbílar á svæðinu auk þess að sýnd verða flugmódel.

Hægt verður að tjalda á svæðinu og komið verður upp aðstöðu til að grilla.

Bílakjarninn
Bílakjarninn