Hass reykt við Njarðvíkurhöfn: sjö heimagerðar hasspípur finnast
Sjö heimagerðar hasspípur hafa fundist á hafnarsvæði Njarðvíkur á síðustu tveimur mánuðum. Íbúi í Njarðvík sem býr nálægt hafnarsvæðinu hefur fundið hasspípurnar í gönguferðum um svæðið. Pípurnar eru útbúnar úr hálfs lítra plastflöskum þar sem álpappír hefur verið komið fyrir á stút hverrar flösku.
Íbúinn sem vill ekki láta nafns síns getið segir að hann hafi fundið hasspípurnar á gönguferðum um hafnarsvæðið. „Ég geng oft um svæðið og hef fundið þær víða. Það eru margir staðir hér á hafnarsvæðinu þar sem unglingar geta verið í skjóli og reykt,“ segir íbúinn og hann segir töluvert um að unglingahópar séu á svæðinu. „Ég get náttúrulega ekkert fullyrt hvað krakkarnir eru að gera þarna en maður getur svosem lagt saman tvo og tvo.“
Íbúinn segir að hann hafi einnig orðið var við bíla sem lagt er við gömlu olíutankana við Njarðvíkurhöfn. „Þeir eru kannski að stoppa þarna í 20 mínútur og maður veit náttúrulega ekki hvort þeir eru bara á rúntinum.“
Víkurfréttir fóru um hafnarsvæðið og í þeirri athugun komu í ljós nokkrir staðir sem unglingar virðast koma saman á. Inn í hinum svokölluðu Olsen húsum fannst Smirnoff flaska ofan af Keflavíkurflugvelli. Hægt er að fara inn um glugga á húsinu en þar inni er allt brotið og bramlað og verður að teljast slysagildra fyrir þá sem þangað fara inn. Bakvið sjöstjörnuhúsin þar sem Fiskmarkaður Suðurnesja er til húsa hefur íbúinn fundið hasstól en þar er gríðarlegt rusl og gamall trébátur sem unglingar virðast hafa verið í. Einnig fannst heimagerð hasspípa bakvið vinnuskúr Skipaafgreiðslu Suðurnesja. Ein pípa fannst við gömlu olíutankana við Njarðvíkurhöfn og ein bakvið hin svokölluðu FR hús. Íbúinn sem fann hasspípurnar hefur ekki haft samband við lögregluna í Keflavík vegna hasstólanna sem hann hefur fundið.
Rúnar Árnason rannsóknarlögreglumaður í fíkniefnadeild lögreglunnar í Keflavík segir það nokkuð algengt að lögreglumenn finni heimagerðar hasspípur á eftirlitsferðum. Einnig sé nokkuð um að íbúar á Suðurnesjum finni slíkar pípur og tilkynni til lögreglunnar í Keflavík. Að sögn Rúnars hafa hasspípur fundist á hafnarsvæðinu í Njarðvík, á Stapanum og í Grófinni, auk þess sem hasspípur hafi fundist á hafnarsvæðinu í Grindavík. Rúnar segir að lögregluna gruni að þarna séu unglingar á ferð. Einnig viti lögreglan til þess að bifreiðum sé lagt á þessum svæðum og þær notaðar til hassreykinga. „Við höfum fengið vitneskju um slíkt en ekki staðið neina að verki. Það er fylgst með þessum svæðum og fara lögreglubílar reglulega í eftirlitsferðir um þau,“ sagði Rúnar í samtali við Víkurfréttir.
Myndirnar: Hasspípurnar sjö sem fundist hafa við Njarðvíkurhöfn á síðustu tveimur mánuðum. Ein hasspípa fannst á bakvið húsnæði Fiskmarkaðs Suðurnesja. VF-ljósmyndir: Jóhannes Kr. Kristjánsson.