Háspennulínur og jarðstrengir í aðalskipulagstillögu
Í fundargerð Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar kemur fram að drög að aðalskipulagstillögu Reykjanesbæjar 2006-2021 falla vel að stefnu- og markmiðum sem sett voru í upphafi skipulagsvinnu og sýna á skýran hátt hvernig unnt verði að uppfylla þau.
Drögin gera m.a. ráð fyrir mikilli uppbyggingu íbúða og atvinnustarfsemi, skipulagi samgöngukerfis, legu háspennulína og jarðstrengja vegna uppbyggingar atvinnustarfsemi.
Fram koma drög að áföngum uppbyggingar og greinagerð fyrir umhverfisáhrifum. Á kynningartíma hafa borist góðar ábendingar til Umhverfis- og skipulagsráðs en fólki gafst kostur á að senda inn athugasemdir til 22. ágúst sl.