Háskólasetrið í Sandgerði: Gagngerar endurbætur fyrirhugaðar

„Þarna erum við að samþætta mörg atriði,“ sagði Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sandgerðis, í samtali við Víkurfréttir í dag. „Í húsinu erum við með Náttúrustofu Reykjaness, rannsóknarstöðina, Fræðasetrið og svo Háskólasetrið.“
Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 15 milljónir króna og er fyrirhugað að taka lán til að fjármagna hana þar til fjármagn fáist frá hinu opinbera í formi leigu á húsnæðinu.