Bygg
Bygg

Fréttir

Þriðjudagur 23. október 2001 kl. 20:47

Harpa VE strandaði í Grindavík

Nótaskipið Harpa VF 25 strandaði í austanverðri innsiglingunni til Grindavíkur rúmlega sjö í kvöld. Skipið sat fast í rúma klukkustund og er nú, þegar klukkuna vantar fjórðung í níu, að koma inn í höfnina.Grétar Sigurðsson hjá Grindavíkurhöfn sagði í samtali við VF.IS nú rétt áðan að menn óttuðust ekki miklar skemmdir á skipinu sem er 53 metra langt og 445 tonn. Flóð er í Grindavík um kl. 23 í kvöld.
Bílakjarninn
Bílakjarninn