Harma saklaust grín sem kom illa við fólk
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar gagnrýni sem skapast hefur vegna rauðra derhúfa með áletruninni „Make Grindavík great again“ sem sveitin lét framleiða í takmörkuðu upplagi. Húfurnar vöktu athygli og mikla umræðu eftir að þær voru settar í sölu, en samkvæmt yfirlýsingu sveitarinnar var húfugerðin hluti af innanhússhúmor og ætlað að vísa til bjartsýni um endurreisn samfélagsins í Grindavík. Sveitin harmar að húfurnar hafi sært tilfinningar fólks og segir að þær verði hvorki seldar frekar né framleiddar aftur.
Yfirlýsingin er eftirfarandi:
Í maí s.l. voru fulltrúar sveitarinnar þátttakendur á Landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldið var á Selfossi. Í gegnum tíðina hefur sveitin tekið þátt í ýmiskonar sprelli til þess að þjappa hópnum saman og í þó nokkur skipti gert derhúfur með ýmsu gríni til gamans. Á föstudagskvöldi var haldin grillveisla á veitingastaðnum Hvíta Húsinu á Selfossi og mættu fulltrúar sveitarinnar í Hvíta Húsið með umræddar rauðar húfur með áletrunina "Make Grindavík great again". Samtals voru 25 húfur framleiddar í þetta verkefni og strax um kvöldið kom í ljós að færri fengu en vildu og óhætt að segja að áhuginn á húfunum hafi verið mjög mikill. Eftir þingið var ákveðið að panta nokkrar húfur í viðbót fyrir félaga sveitarinnar sem ekki fengu húfur og selja svo afganginn öðrum Grindvíkingum. Voru því pantaðar 100 húfur í viðbót og megnið af því var selt félagsmönnum. Ákveðið var auglýsa afganginn á íbúasíðu Grindvíkinga á facebook en stuttu síðar var ákveðið að hætta sölu.
Hér er augljóslega um misheppnað grín að ræða sem þótti gott í þröngum hópi. Allir vita hver staðan er í Grindavík þessa dagana og það hefur þótt gott að hafa húmor fyrir því grafalvarlega ástandi sem þar ríkir. Með þessu gríni var vísað í enduruppbyggingu samfélagsins í Grindavík sem mun vonandi vaxa og dafna á ný.
Þessar húfur eru alls ekki gerðar til þess að styðja við núverandi forseta Bandaríkjanna eða þeim málum sem hann stendur fyrir. Það var ekki tilgangurinn að valda ólgu né gera okkur sjálf umdeild vegna stjórnmála á erlendri grundu. Stjórnmál, hvar sem þau eru, er ekki hluti af starfi björgunarsveita.
Við, björgunarsveitarfólk í Grindavík, hörmum það að það sem við héldum að væri saklaust grín hafi komið illa við fólk og valdið þessari hræðilegu umræðu í okkar garð í dag.
Húfurnar eru ekki lengur til sölu og verða aldrei aftur til sölu hjá okkur.
Með vinsemd og virðingu
Björgunarsveitin Þorbjörn, Grindavík.