HSS
HSS

Fréttir

Hárlaus hundur í íþróttagalla týndur í Sandgerði
Mánudagur 17. nóvember 2008 kl. 13:53

Hárlaus hundur í íþróttagalla týndur í Sandgerði

Mikil leit hefur verið gerð í rúma viku af hárlausum hundi sem strauk úr pössun í Sandgerði. Hundurinn er af Chinese creste ætt og er hárlítill. Um er að ræða tík sem var klædd í bómullar íþróttagalla sem skiptist í bleika peysu og svartar buxur (frá Theo). Hún er með mjög lítið og þunnt hár. Tík þessi svarar ekki kalli og er mjög stygg. Ef þú telur þig hafa séð til ferðar hennar, þá vinsamlegast hringdu (hvenær sem er sólahrings) í síma 423 7207 eða 864 1903 (Elísabet).

Bílakjarninn
Bílakjarninn