Harður árekstur við Grindavíkurafleggjara
Harður árekstur tveggja bifreiða varð á Reykjanesbraut við Grindavíkurafleggjara klukkan rúmlega sjö í morgun. Ökumenn beggja bifreiða voru fluttir með sjúkrabílum til Reykjavíkur og var annar ökumaðurinn meðvitundarlaus, en klippa þurfti hann úr bifreið sinni. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni í Keflavík virðist sem ökumaður bifreiðar sem var á leið til Keflavíkur eftir Reykjanesbraut hafi misst stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að bifreiðin valt yfir aðra bifreið sem var að koma út af Grindavíkurafleggjara áleiðis til Reykjavíkur.
VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson: Af slysstað í morgun.