Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Harður árekstur þegar ökumaður virti ekki stöðvunarskyldu
Áreksturinn varð á þessum gatnamótum. Mynd úr götusjá ja.is
Mánudagur 6. febrúar 2017 kl. 11:10

Harður árekstur þegar ökumaður virti ekki stöðvunarskyldu

Harður árekstur varð í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina þegar ökumaður bifreiðar virti ekki stöðvunarskyldu við Flugvallarbraut með þeim afleiðingum að hann ók í veg fyrir aðra bifreið. Ökumaður hinnar síðarnefndu fékk skurð á ennið og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Báðar bifreiðirnar voru óökufærar eftir áreksturinn og voru fjarlægðar með dráttarbifreið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024