Harður árekstur í Keflavík
Einn var fluttur undir læknis hendur eftir að harður árekstur varð á gatnamótum Hringbrautar og Faxabrautar í Keflavík í gærkvöldi. Áreksturinn varð með þeim hætti að bifreið var ekið viðstöðulaust í veg fyrir aðra á framangreindum gatnamótum.
Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar fann mikið til í fótum og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bifreiðirnar voru báðar óökufærar og voru fjarlægðar með dráttarbifreið.
Fleiri umferðaróhöpp urðu í vikunni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum en þau voru minni háttar og engin slys urðu á fólki.